Halló þið sem enn lesið mitt fátæklega blogg. Ákvað að deila með ykkur nýjustu pælingum í mínum fátæklega huga. Alveg merkilegt hvað orðið fátæklegt situr í mínum huga í dag
En fyrir þá sem ekki vita, þá ætlum við Jón Óli og Gísli að skella okkur til Danmerkur yfir jólin
Gísla langar náttúrulega að vera með sínum börnum yfir hátíðarnar og okkur langar líka að vera saman yfir jólin
Við vorum náttúrulega svo nýbyrjuð saman síðustu jól að þá vorum við ekkert að pæla beint í því og hugsuðum bara um okkar eigins rass ef svo má segja 
En núna ætlum við að vera saman og ekki vil ég heldur að hann verði án barnanna sinna yfir hátíðarnar því það hlýtur að vera ömurlegt 
En allavega þá ætla ég og Jón Óli að flytja næsta vor. Ég og minn maður erum alveg til í að fara búa saman enda kannski kominn tími á það. Við erum búin að vera saman í 9 mánuði og búin að taka hlutina nógu rólega
En þá er það spurningin!! Hvert á að flytja?? Við erum búin að vera spá í Danmörk, bæði upp á möguleika í skóla og auðvitað eru börnin hans þar. Ég verð að segja að ég er frekar spennt fyrir þeim valmöguleika og væri alveg til að yfirgefa okkar frostna frón og prófa eitthvað nýtt, fyrir utan að ég myndi nú læra málið almennilega og Jón Óli myndi læra annað tungumál.
Svo kom hugmynd um þýskaland um daginn en ég veit ekki alveg hvernig staðan þar er í sambandi við nám hvort það sé semsagt eins gott kerfi þar og í Danmörku...
Svo lokahugmynd er að flytja aftur suður, flytja á Selfoss, Þorlákshöfn eða einhverstaðar þar nálægt svo kallinn geti verið áfram á sjó og skella sér í fjarnám eða skóla eða eitthvað en ég veit það ekki alveg ennþá.....
Hugmyndir og uppástungur væru góðar hér


Að lokum vil ég deila smá skemmdarverki hér með ykkur..... Gísli kom heim um daginn af sjónum og það fyrsta sem blasir við honum er bíllinn fyrir utan heima hjá honum. Nema hvað. Það hefur einhver hálfviti tekið lykil eða pening eða einhvern andsk&%$// og RISPAÐ aðra hliðina og þá alla hliðina. Þetta er alveg ótrúlegt að fólk gerir svona og mér blöskrar af þessu: Hvaða apakettir gera svona lagað. Ég er bókstaflega búin að vera brjáluð af þessu og þetta var ekki eini bíllinn það var annar bíll fyrir aftan sem fékk sömu útreið og ég skil þetta bara ekki. Síðustu helgi var einhver bíll þarna á bílastæðinu tekinn og bókstaflega rústaður rúður brotnar og læti. En þótt við vorum nú heppin að það var ekki gert á bílnum hans Gísla þá er ég samt brjáluð og skil ekki að einhvar hálfviti geri svona bara sér til skemmtunar.
ein ringluð og reið í augnablikinu
Ólöf ögn